Haldið sofandi á Landspítala

Frá vettvangi í dag.
Frá vettvangi í dag. mbl.is/Alfons

Ferðamönnunum tveimur sem slösuðust alvarlega í bílslysi við Hellissand í morgun er haldið sofandi á gjörgæslu Landspítalans.

Ferðamennirnir, karl og kona, eru kínverskir og voru í á ferð ásamt fjórum öðrum þegar bíll þeirra valt. Voru þau flutt til borgarinnar með þyrlu Landhelgisgæslunnar Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum eru þau þungt haldin og verður haldið sofandi áfram um nokkra hríð.

Frétt mbl.is: Tveir alvarlega slasaðir 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert