„Þú þarft að hafa hausinn í lagi“

Katrín Tanja í einni þraut keppninnar.
Katrín Tanja í einni þraut keppninnar. mbl.is/Berglind Sigmundsdóttir

„Þetta er svo klikkað, ég er ekki alveg farin að trúa þessu ennþá. Nú ætla ég bara að slappa af, komast í gegnum öll skilaboðin og svara þeim, það er samt svo stressandi að vera svona mikið í símanum,“ segir Katrín Tanja Davíðsdóttir, hraustasta kona heims, og hlær.

Katrín Tanja sigraði á heimsleikum í crossfit á sunnudaginn. Hún segir það ekki hafa verið markmiðið að vinna heldur miklu frekar að gera sitt besta í hverri einustu keppnisgrein en þær voru þrettán á fjórum keppnisdögum. „Ég fór ekki inn í þessa helgi með það fyrir augum að ég ætlaði að sigra, en ég var búinn að vinna hart að þessu í heilt ár, sérstaklega eftir að hafa ekki komist á leikana í fyrra, gaf allt sem ég gat á hverjum einasta degi í heilt ár. Markmiðið fyrir þessa helgi var að gefa allt í hverja einustu keppnisgrein, koma út af vellinum og vita það að óháð því í hvaða sæti ég hefði lent, þá gæti ég vitað að það var mitt besta sæti, að ég hefði ekki getað gert neitt betur í þeirri keppnisgrein. Það gekk bara alla helgina og það skilaði þessum árangri. Fyrir síðustu keppnisgreinina hugsaði ég í fyrsta skipti að núna ætti ég möguleika á að verða hraustasta kona í heimi,“ segir Katrín Tanja og það gerði hún heldur betur.

Það var tilfinningaþrungin stund þegar Katrín Tanja hafði unnið síðustu keppnisgreinina en hún segir að vegna þess að hún hafi ekki sett sér það markmið að vinna keppnina frá upphafi eða hugsað sérstaklega út í að sigra fyrr en rétt undir lokin hafi tilfinningarnar hellst yfir sig þegar hún stóð uppi sem sigurvegari.

Erfitt að hugsa ekki um töfluna

„Það er erfitt að hugsa ekki um stigatöfluna. Það er ekki nóg að vera í fantagóðu formi, þú þarft að hafa hausinn í lagi, þarft að hafa einbeitinguna í lagi og andlega hliðin skiptir svo ótrúlega miklu máli. Það sem skilaði mér á toppinn, það var hausinn,“ segi Katrín Tanja.

En hvað fer í gegnum höfuðið meðan á keppninni stendur? Katrín segir hugarfarið vera mjög ólíkt eftir keppnisgreinum. „Ein úthaldsgreinin snerist eingöngu um hlaup. Sex umferðir þar sem hlaupið lengdist alltaf á milli, var frá 400 og upp í 600 m. Á milli bárum við drumb á bakinu en við vorum allar jafn lengi að því. Þjálfarinn minn sagði við mig að þessi keppnisgrein snerist því bara um það hver gæti pínt sig mest í hlaupunum. Ég hef ekki endilega verið þekkt fyrir hlaupa- eða úthaldsgreinar og var sekúndubroti frá fjórða sætinu í þeirri grein og tók það fimmta. Ég er hvað stoltust af sjálfri mér fyrir árangurinn í þeirri grein. Ég hef mikið verið að vinna í hlaupinu og það eina sem var í hausnum á mér var: ég er búin að vera að hlaupa á fjöll, ég er búin að vera að hlaupa mikið og meira en þær, ég get gert þetta.“

„Svo var það kaðlaklifrið án fóta, greinin sem hélt mér frá heimsleikunum í fyrra, í henni fann ég fyrir stressi í eina skiptið á leikunum. Þá sagði þjálfarinn: allt í lagi Katrín, ég er með þér í þessu. Þetta verður bara ég og þú og við erum í æfingasalnum og gerum þetta eins og á hverjum einasta degi. Þú ætlar að gera þetta eins og ég sé með þér á staðnum. Komdu svo niður og hvíldu þig og hugsaðu svo um það hvað ég myndi segja þér að gera á æfingu. Þannig að hugarfarið var á þá leið að ég hefði þjálfarann með mér á vellinum og það hjálpaði mér mjög mikið.“

Bíður eftir því að geta æft

Katrín Tanja segir að líkaminn sé í merkilega góðu ástandi. „Ég er furðu góð. Hitinn á föstudeginum var samt mjög þungur. Þjálfarinn lætur mig taka viku þar sem ég má ekki gera neitt, en um miðjan ágúst byrjum við æfingar aftur á fullu. Þetta er mjög strangt en það skemmtilegasta sem ég geri. Ég er í rauninni bara að bíða eftir því að geta farið að æfa aftur. Ég sit hérna í æfingagallanum, við getum orðað þetta þannig,“ segir Katrín Tanja í léttum tón.

Katrín Tanja segir að erfiðasta greinin hafi verið svokallað Murph. „Erfiðast var klárlega þegar við þurftum að taka Murph, stelpur í sjö kílóa vestum og strákar í tíu kílóa vestum. Við þurftum að hlaupa mílu, taka hundrað upphífingar í röð, tvö hundruð armbeygjur í röð, þrjú hundruð hnébeygjur og hlaupa svo aftur mílu. Að taka hundrað upphífingar í röð, þá er maður búinn að klára allt togið í einu, svo á maður eftir armbeygjurnar og þetta eru svo litlir vöðvahópar sem eru að vinna yfir svo langan tíma. Það var langt, erfitt fyrir hausinn, það var rosalega heitt og mann svimaði dálítið í hnébeygjunum áður en maður fór aftur af stað í míluna.

Katrín Tanja segir að stuðningsnetið skipti öllu máli og að þó að þetta sé einstaklingskeppni þá fari þetta enginn einn. Miklu máli skipti að hafa gott teymi á bakvið sig. Hún segist vera gífurlega heppin með þjálfarann sinn og fjölskylduna en einnig Annie Mist en þær stöllur æfa mikið saman og sárt hafi verið að sjá á eftir henni úr keppninni.

En hvers vegna eru Íslendingar og þá sérstaklega íslenskar konur svo öflugar í crossfit? „Þrjú af sex einstaklingssætunum á palli á heimsmeistaramóti fóru til Íslands. Að mínu mati var Annie Mist brautryðjandi þegar hún vann 2011. Að sjá íslenska stelpu vinna heimsmeistaramót, þetta er svo nálægt manni og ég horfði á þetta og hugsaði: mig langar að gera þetta. Trúin eykst og ég held að við íslensku stelpurnar trúum því að allt sé mögulegt. Það eflir okkur líka að við séum svona margar á þessu getustigi. Ég held að þetta sé einnig kynjajafnréttið á Íslandi, það er svo mikið á Íslandi og við erum stoltar af því að vera sterkar. Það er litið upp til þess að vera sterkur og í góðu formi á Íslandi, sem er náttúrlega svo ótrúlega mikilvægt. Það er líka svo mikilvægt að geta verið góð fyrirmynd og að það séu stelpur sem líta upp til þess að lifa í hraustum líkama,“ segir Katrín Tanja.

Katrín Tanja eftir að ljóst var að hún hafði sigrað …
Katrín Tanja eftir að ljóst var að hún hafði sigrað á heimsleikunum í crossfit. Ljósmynd/Milisa Smith
Tvær íslenskar á verðlaunapalli: Katrín Tanja fékk gullverðlaun og Sara …
Tvær íslenskar á verðlaunapalli: Katrín Tanja fékk gullverðlaun og Sara Sigmundsdóttir bronsið. mbl.is/Berglind Sigmundsdóttir
Katrín Tanja býr sig undir átök.
Katrín Tanja býr sig undir átök. mbl.is/Berglind Sigmundsdóttir
Stigataflan á leikvanginum í Los Angeles.
Stigataflan á leikvanginum í Los Angeles. mbl.is/Berglind Sigmundsdóttir
Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir var um tíma efst í keppninni. Hún …
Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir var um tíma efst í keppninni. Hún náði 3. sætinu.
Ragnheiður Sara í Los Angeles.
Ragnheiður Sara í Los Angeles. mbl.is/Berglind Sigmundsdóttir
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert