Misstu af miklum hluta leiksins

mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Rafmagnsleysið í Vestmannaeyjum í kvöld varð þess valdandi að illa gekk að fylgjast með landsleiknum í knattspyrnu á milli Íslands og Hollands. Misstu Eyjamenn meira eða minna af leikum og náðu aðeins hluta hans í mesta lagi.

Rafmagnsleysið í Vestmannaeyjum stafar af bilun sem varð í spenni í tengivirkinu Rimakoti rétt upp úr klukkan 16 í dag. Fyrir vikið var ekki hægt að flytja rafmagn til Eyja samkvæmt fréttatilkynningu frá Landsneti. Auk Eyjamanna hafa íbúar undir Eyjafjöllum og í Mýrdal orðið fyrir rafmagnsleysi vegna bilunarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert