Rafmagnslaust í Neskaupstað

Úr myndasafni.
Úr myndasafni. Ljósmynd/Landsnet

Rafmagnslaust er á Neskaupstað en útleysing varð á Neskaupstaðarlínu klukkan 8:24 samkvæmt upplýsingum frá Landsneti. Strax var reynt að setja línuna inn aftur en hún leysti strax út aftur. Til stendur að reyna aðra innsetningu en á meðan verður varaaflsstöð ræst.

Rafmagn fór einnig af Seyðisfirði um klukkan fjögur í nótt vegna útleysingar á Seyðisfjarðarlínu. Straumleysið varði þó aðeins í um átta mínútur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert