Réðust á stúlku við Langholtsskóla

Langholtsskóli er meðal annars við Holtaveg.
Langholtsskóli er meðal annars við Holtaveg. Af vef Langholtsskóla

Unglingsstúlka varð fyrir líkamsárás á bílaplani Langholtsskóla í gær. Að minnsta kosti þrír stóðu að baki árásinni en hún tengist einelti í öðrum skóla. Hvorki þolandi né meintir gerendur eru nemendur við skólann.

Greint er frá málinu á fréttavef Ríkisútvarpsins en Benedikt Lund lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu staðfesti við mbl.is að málið væri í rannsókn.

Lögreglu er kunnugt um hverjir meintir gerendur í málinu eru. Benedikt vill að öðru leyti ekki tjá sig um málið en segir það á viðkvæmu stigi. Haft var samband við barnaverndaryfirvöld vegna málsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert