Lögreglan vill ná tali af manni

Lögreglan vill ná tali af þessum manni.
Lögreglan vill ná tali af þessum manni. Ljósmynd/Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af karlmanninum á meðfylgjandi mynd vegna máls sem hún hefur til rannsóknar. Er maðurinn vinsamlega beðinn um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu 113–115 í Reykjavík í síma 444 1000, að því er segir í tilkynningu frá lögreglu.

Ef einhverjir þekkja til mannsins eða vita hvar hann er að finna eru hinir sömu einnig beðnir um að hringja í lögregluna, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið benedikt.lund@lrh.is eða einkaskilaboðum á fésbókarsíðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert