Kona slasaðist á torfærukeppni

Frá Akranesi. Mynd úr safni.
Frá Akranesi. Mynd úr safni. Eggert Jóhannesson

Kona var flutt á Sjúkrahúsið á Akranesi eftir hádegi í dag eftir að hafa slasast þar sem hún var að mynda torfærukeppni við Fellsenda.

Svo virðist sem einn bílanna hafi lent utan í henni með þeim afleiðingum að hún féll í jörðina og hlaut konan við það áverka á höfði og fæti.

Að sögn lögreglu má rekja slysið til tveggja atriða. Annars vegar var konan heldur nær brautinni en áhorfendur þar sem hún var að mynda keppnina og hins vegar varð minni háttar bilun í bílnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert