Meðvitundarlaus með mikla áverka

mbl.is/júlíus

Tilkynnt var um meðvitundarlausan mann utandyra í Kópavogi um klukkan tíu í gærkvöldi. Frá þessu er greint í dagbók lögreglu.

Viðkomandi var fluttur á slysadeild og reyndist hann vera með mikla áverka bæði í andliti og á skrokknum. Ekkert er vitað um orsök en málið er í rannsókn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert