Rúmlega tvö þúsund undirritað

Deilt er um áfengisfrumvarpið sem ekki hefur verið tekið til …
Deilt er um áfengisfrumvarpið sem ekki hefur verið tekið til atkvæðagreiðslu. mbl.is/Júlíus

Rúmlega tvö þúsund manns hafa skrifað nafn sitt á undirskriftalista gegn frum­varpi um að leyfa frjálsa sölu áfeng­is og áfengisaug­lýs­ing­a á vefn­um www.allraheill.is. Skráningin hófst í gær. 

„Þegar við náum 20 þúsund munum við afhenta þingmönnum listann. Þetta er ólýðheilsulegasta frumvarp sem hefur verið lagt fram,“ segir Aðalsteinn Gunnarsson, framkvæmdastjóri IOGT á Íslandi, sem stendur fyrir undirskriftasöfnuninni. Hann spyr jafnframt hvaða hagsmuna er verið að gæta með frumvarpinu.  

Aðalsteinn segist finna mikinn meðbyr með málefninu. Árið 2015 þegar sambærilegt frumvarp var einnig til umræðu afhentu samtökin yngsta þingmanni Alþingis, Jóhönnu Maríu Sigmundsdóttur, um tvö þúsund undirskriftir sem höfðu safnast við sama tilefni.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert