Ógnaði með skrúfjárni

Lögreglan handtók mann í annarlegu ástandi við Grensásveg á öðrum tímanum í nótt. En maðurinn ógnaði þremur ungum mönnum með skrúfjárni. Maðurinn er grunaður um brot á vopnalögum, hótanir, vörslu fíkniefna o.fl.  Hann var vistaður fyrir rannsókn máls í fangageymslu lögreglu.

Tveir menn voru handteknir við Sundahöfn um tvö í nótt grunaðir um húsbrot. Mennirnir voru komnir inn á lokað athafnasvæði hjá Eimskip. Þeir eru vistaðir í fangageymslu lögreglu vegna rannsóknar málsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert