Hvalur flæktur í veiðarfæri

Varðskipið Þór er á leiðinni inn í Arnarfjörð vegna hvals …
Varðskipið Þór er á leiðinni inn í Arnarfjörð vegna hvals sem er flæktur í veiðafærum. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Landhelgisgæslu barst tilkynning um hval sem sást í Arnarfirði með veiðafæri áföst sporði. Varðskipið Þór er á leiðinni á staðinn til þess að athuga aðstæður.

Samkvæmt Landhelgisgæslunni verður athugað hvort mögulegt sé að losa veiðafærin af hvalnum en ekki er víst að það takist.

Uppfært kl. 23.59:

Búið er að losa hvalinn. Tókst það rétt fyrir klukkan 21 í kvöld. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert