Sigurður Ingi samstarfsráðherra Norðurlanda

Sigurður Ingi Jóhannsson.
Sigurður Ingi Jóhannsson. mbl.is/Eggert

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag að skipa Sigurð Inga Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, í embætti samstarfsráðherra Norðurlanda. Samstarfsráðherra ber ábyrgð á norrænu ríkisstjórnarsamstarfi innan Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir hönd forsætisráðherra.

Saman fara samstarfsráðherrar hverrar þjóðar með stjórn norræna ríkisstjórnarsamstarfsins og taka stefnumótandi ákvarðanir.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.

„Norræna ráðherranefndin var stofnuð árið 1971. Markmiðið með norrænu samstarfi er annars vegar að gera Norðurlöndin aðlaðandi til búsetu, atvinnu og fyrirtækjarekstur og hins vegar að efla norrænu ríkin á alþjóðavettvangi. Samstarfið er fjölþætt, meðal annars á sviði rannsókna, umhverfismála, velferðar og menningar.

Fulltrúar ríkisstjórna Norðurlanda hittast í ráðherranefndinni og móta meðal annars norræna samninga og sáttmála. Á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar starfa tíu nefndir fagráðherra, sem hittast reglulega og ræða sameiginleg málefni,“ segir í tilkynningu.

Upplýsingar um Norrænu ráðherranefndina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert