Lýsa eftir bíl í tengslum við stórfelldan þjófnað

mbl.is/Eggert

Lögreglan á Vesturlandi lýsir eftir bifreiðinni LR-538 sem er blá sendibifreið af gerðinni Volkswagen Transporter árgerð 1998. Lýst er eftir bifreiðinni í tengslum við rannsókn á stórfelldum þjófnaði sem átti sér stað í Borgarnesi aðfaranótt 15. desember.

Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni, að öllum sem hafi orðið varir við bifreiðina, eða viti hvar hún er niðurkomin, sé bent á að hafa samband við lögregluna á Vesturlandi í síma 444-0323 eða með skilaboðum á Facebook-síðu lögreglunnar á Vesturlandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert