Talsverðri úrkomu er spáð á svæðinu á morgun

Seyðisfjörður.
Seyðisfjörður. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hreyfing mælist enn á fleka sem liggur hægra megin (sunnan megin) í skriðusárinu frá desember 2020 og Búðarár. Engar aðrar hreyfingar hafa mælst í hlíðinni ofan Seyðisfjarðar og engin hreyfing þar af í stórum fleka norðan megin skriðusársins frá desember 2020. Talsverðri úrkomu er spáð á svæðinu á morgun.

Frá þessu greina almannavarnir í tilkynningu. 

Bent er á, að með því að fara á bloggsíðu Veðurstofu Íslands sé hægt að skoða staðsetningu flekans meðal annars og hreyfingar á speglum, auk þess sem þar má fá ítarlegri upplýsingar um stöðu mála. (Sjá einnig borða inn á vef veðurstofu á vefslóðinni vedur.is; - „Viðvörun  Hættustig Almannavarna á Seyðisfirði, vegna hættu á skriðuföllum“.)

„Talsverðri úrkomu er spáð á svæðinu á morgun. Ný og nákvæmari spá mun liggja fyrir síðar í dag frá Veðurstofu Íslands. Rýming mun vara fram yfir helgi.

Herðubreið verður opin milli klukkan 14 og 16 í dag sem og aðra daga meðan rýming varir. Einnig verður opið um helgina á sama tíma. Íbúar í húsum á rýmingarsvæðum eru sérstaklega hvattir til að mæta. Þeir munu fá aðstoð við að fara að og huga að húsum sínum hafi þeir hug til þess,“ segir í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert