Búið að fjarlægja rútuna

Vegurinn er ófær bílum með eftirvagna.
Vegurinn er ófær bílum með eftirvagna. mbl.is/Kristinn Magnússon

Búið er að fjarlægja rútuna sem þveraði Suðurstrandaveg, þar sem hann tengist við Krýsuvíkurveg, fyrr í dag. 

Athygli var sérstaklega vakin á þessu fyrir þá sem væru á leið heim eftir verslunarmannahelgi með eftirvagna þar sem smærri ökutæki komust fram hjá en ekki ökutæki með eftirvagna. 

Nú ætti aftur á móti öll hindrun að vera úr vegi og því geta bílar með eftirvagna haldið af stað Suðurstrandaveg án nokkurra vandræða.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum. 


 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert