Stuðningur við hjól og rafhjól verði framlengdur

Hjólreiðamaður á ferð í umferðinni.
Hjólreiðamaður á ferð í umferðinni. mbl.is/Árni Sæberg

Meirihluti efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis leggur til að virðisaukaskattsívilnun fyrir rafmagnshjól og reiðhjól verði framlengd um eitt ár.

Fram kemur í nefndaráliti að um sé að ræða umhverfisvæn farartæki sem séu til þess fallin að draga úr bílaumferð og fjölga í hópi þeirra sem ferðast með vistvænum hætti.

Op­in­ber stuðning­ur við kaup á virk­um sam­göngu­tækj­um, líkt og reiðhjól­um, raf­magns­hjól­um, raf­magns­hlaupa­hjól­um og öðrum slík­um vist­væn­um tækj­um átti að fella al­veg niður með breyt­ingu á stuðnings­kerfi hins op­in­bera sem tek­ur gildi um ára­mót­in.

Niðurstaða efnahags- og viðskiptanefndar er á skjön við ummæli Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, sem sagði ívilnanirnar fyrir rafmagnshjól og reiðhjól hafa átt að vera tímabundar. 

Einnig er niðurstaðan á skjön við svar umhverfis-, orku- og loftslasgsráðuneyt­is­ins til mbl.is fyrr mánuðinum.

„Í ljósi þess að styrkj­um til orku­skipta er ætlað að stuðla að sem mest­um sam­drætti í los­un, verður þeim varið til að stuðla að orku­skipt­um í bíla­flot­an­um með styrkj­um til kaupa á hrein­orku­bíl­um. Ekki er gert ráð fyr­ir styrkj­um til kaupa á öðrum vist­væn­um far­ar­tækj­um,“ sagði í svarinu. 

Þá var einnig haft eft­ir Guðlaugi Þór í svar­inu: „Fyr­ir­komu­lag­inu er ætlað að stuðla að sem mest­um sam­drætti í los­un svo græn­um orku­skipt­um verði náð og Ísland geti náð mark­miðum sín­um í lofts­lags­mál­um. Þess vegna leggj­um við áherslu á orku­skipti bíla­flot­ans.“

Ágúst Bjarni Garðarsson.
Ágúst Bjarni Garðarsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ágúst Bjarni Garðarsson, 1. varaformaður efnahags- og viðskiptanefndar, segir í samtali við mbl.is að rafmagnshjól og reiðhjól falli ekki inn í nýtt styrkjakerfi Orkusjóðs og því hafi nefndin lagt þessa breytingu til. 

Spurður hvers vegna lögð er til ívilnun fyrir farartækin í eitt ár segir Ágúst Bjarni þetta vera fyrsta skrefið. Eftir það þurfi að vega og meta hvernig málin þróast til framtíðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert