Tveir skipta með sér lottópottinum

Tveir voru með allar tölur réttar og skipta því með sér lottópotti kvöldsins og fær hvor þeirra rúmar 4,9 milljónir í sinn hlut.

Í tilkynningu kemur fram að annar miðahafana sé í áskrift en hinn keypti miðann sinn á Lotto.is.

Þá voru fjórir miðaeigendur með bónusvinninginn og fær hver þeirra rúmlega 235 þúsund í sinn hlut.

Einn miðinn var keyptur í Mini Market Smiðjuvegi, einn á Olís Sæbraut og tveir eru með miðana sína í áskrift.

Einn áskrifandi var með allar tölur réttar í réttri röð í jóker kvöldsins og fær hann fyrir það tvær milljónir króna. Þá voru tveir miðaeigendur með 2. vinning og fá þeir 100 þúsund krónur hvor. Báðir miðarnir voru keyptir í lottó appinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert