Myndskeið: Silast áfram í átt að veginum

Talsvert hefur dregið úr hraða hraunsins sem stefnir í átt að Suðurstrandarvegi. Segja má að hraunið silist áfram, 12 metra á klukkustund, og ef fram heldur sem horfir mun það ná veginum eftir 19 klukkustundir. 

Klukkan 19 í kvöld átti hraunið enn eftir um 250 metra að veginum. Hörður Kristleifsson ljósmyndari tók meðfylgjandi myndir. 

Framflæði hraunsins þykir ekki hratt um þessar mundir og dregið …
Framflæði hraunsins þykir ekki hratt um þessar mundir og dregið hefur úr krafti eldgossins. Ljósmynd/Hörður Kristleifsson
Ljósmynd/Hörður Kristleifsson
Ef hraunið nær veginum eru enn nokkur hundruð metrar til …
Ef hraunið nær veginum eru enn nokkur hundruð metrar til sjávar. Lífshættulegar aðstæður geta myndast ef hraun nær út í sjó, en á þessum tímapunkti þykir ekki líklegt að sú sviðsmynd raungerist. Ljósmynd/Hörður Kristleifsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert