Brauð ársins 2024 úr smiðju Eyjólfs

Eyjólfur Hafsteinsson hjá Bakarameistaranum sigraði í keppninni Brauð ársins 2024. …
Eyjólfur Hafsteinsson hjá Bakarameistaranum sigraði í keppninni Brauð ársins 2024. Landssamband bakarameistara stóð fyrir keppninni.

Eyjólfur Hafsteinsson hjá Bakarameistaranum sigraði í keppninni Brauð ársins 2024. Landssamband bakarameistara stóð fyrir keppni um Brauð ársins 2024. Sjö frábærar brauðtegundir kepptu til úrslita í keppninni en brauð Eyjólfs Hafsteinssonar, bakarameistara, fór með sigur af hólmi.

Mjúkt, bragðmikið með brakandi skorpu

Brauð ársins 2024 er súrdeigsbrauð sem samanstendur af íslensku byggi frá Móður náttúru og spíruðu rúgkorni, sesamfræjum og chiagraut. Að mati dómnefndar er brauðið einstaklega mjúkt og bragðmikið með brakandi skorpu. Að þessu sinni skipuðu þau Árni Þorvarðarson, bakarameistara og deildarstjóra bakaraiðnar hjá MK, Berglindi Festival Pétursdóttir, fjölmiðlakona og brauðunnandi og Sjöfn Þórðardóttir, fjölmiðlakona og umsjónarmaður hjá matarvef mbl.is dómnefnd og var einróma í áliti sínu.

Brauð ársins fer í sölu á fimmtudaginn í bakaríum Landssambands bakarameistara.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert