Myndir: Tímamótasmökkun á vistkjöti

Gleðin var við völd í gær þegar vistkjötssmökkum fór fram …
Gleðin var við völd í gær þegar vistkjötssmökkum fór fram en um var að ræða Evrópu frumsýningu. Samsett mynd/Thelma Arngrímsdóttir

ORF Líftækni og ástralska nýsköpunarfyrirtækið Vow héldur í gær fyrstu opinberu smökkun á vistkjöti í Evrópu.

Boðið var upp á tvo gómsæta rétti þar sem vistkjöt, ræktað úr frumum úr japanskri kornhænu, var í aðalhlutverki. 

Meðal þeirra sem fengu að njóta fyrstu bitanna í smakkinu voru Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Finnur Oddsson forstjóri Haga og Ólafur Örn Steinunnar Ólafsson veitingamaður, svo fáir séu nefndir.

Berglind Rán, George Peppou, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Björn Lárus …
Berglind Rán, George Peppou, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Björn Lárus Örvar. Ljósmynd/Thelma Arngrímsdóttir

Sjálfbær valkostur í náinni framtíð 

Framleiðsla vistkjöts mun losa umtalsvert minna af gróðurhúsalofttegundum en hefðbundinn landbúnaður, auk þess framleiðslan krefst minna landsvæðis og vatns. 

Vow er brautryðjandi í þróun aðferða til að rækta kjöt beint upp úr frumum dýra. Með þessari nýstárlegu aðferð er hægt að framleiða hágæða kjötvörur en halda neikvæðum umhverfisáhrifum í lágmarki.

Finnur Oddsson og Björn Lárus Örvar.
Finnur Oddsson og Björn Lárus Örvar. Ljósmynd/Thelma Arngrímsdóttir

Vaxtaþættir fyrir vaxandi markað  

Þrátt fyrir að markaður fyrir vistkjöt sé enn á frumstigum er áætlað að hann muni vaxa gríðarlega hratt á næstu árum og áratugum; Skýrsla frá McKinsey spáir því að vistkjötsmarkaður verði 25 milljarða Bandaríkjadollara markaður um 2030.

Til að vistkjöt nái samkeppnishæfni og  mæti eftirspurn á markaði, þurfa framleiðendur vistkjöts að stórauka framleiðslugetu og lækka framleiðslukostnað. Vaxtarþættir eru lykilþáttur í framleiðsluferlinu.

Sævar Helgi Bragason og Berglind Rán Ólafsdóttir.
Sævar Helgi Bragason og Berglind Rán Ólafsdóttir. Ljósmynd/Thelma Arngrímsdóttir

Um árabil hefur ORF Líftækni þróað skilvirka leið á framleiðslu vaxtarþátta dýra í erfðabreyttu byggi.

Síðustu ár, hefur fyrirtækið unnið ötullega við að byggja uppvörulínu fyrir vistkjötsmarkað samhliða því að auka framleiðslugetu sína til að mæta vaxandi eftirspurn.

Sendiherra Japan á Íslandi, Suzuki Ryotaro og George Peppou, framkvæmdastjóri …
Sendiherra Japan á Íslandi, Suzuki Ryotaro og George Peppou, framkvæmdastjóri Vow. Ljósmynd/Thelma Arngrímsdóttir

Með þeim fyrstu að smakka þessa nýju matarnýjung 

„Það er gaman að gefa Íslendingum kost á að vera með þeim allra fyrstu til að smakka þessa matarnýjung framtíðarinnar, og upplifa að vistkjöt er ekki bara sjálfbærari valkostur fram yfir hefðbundna kjötframleiðslu heldur er það einnig ljúffengur valkostur!“ segir Berglind Rán Ólafsdóttir, forstjóri ORF Líftækni. 

„Vaxtarþættir ORF gera vistkjötsframleiðendum eins og Vow ekki aðeins kleift að rækta vistkjöt heldur einnig að skala upp ræktunina til að mæta framtíðareftirspurn.“

Ari Fenger, Finnur Oddsson og Árni Sigurjónsson.
Ari Fenger, Finnur Oddsson og Árni Sigurjónsson. Ljósmynd/Thelma Arngrímsdóttir

Það er ekki eins og neitt sem þú hefur smakkað áður 

Vow er einstakt fyrirtæki á vistkjötsmarkaðinum en við einblínum á að fjölga valkostum fremur en að reyna að endurskapa það sem við borðum nú þegar. Við viljum framleiða kjöt sem er ekki eins og annað kjöt – einstakt og bragðgott, næringarríkt og sjálfbært,“ segir George Peppou, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Vow.

„Það er ekki eins og neitt sem þú hefur áður smakkað. Þess vegna erum við svo spennt að kynna ásamt ORF alveg nýja tegund matvæla á þessu tímamótaviðburði.“

Vistkjöt Vow, sem ræktað er úr frumum japanskrar kornhænu, hefur þegar verið metið öruggt til neyslu í Ástralíu og Nýja-Sjálandi og búist er við svipaðri staðfestingu frá Singapúr á næstu dögum og munu fleiri fylgja í framhaldinu.

Bergur Ebbi Benediktsson, Einar Mäntylä og Ragnheiður I. Þórarinsdóttir.
Bergur Ebbi Benediktsson, Einar Mäntylä og Ragnheiður I. Þórarinsdóttir. Ljósmynd/Thelma Arngrímsdóttir
Ólafur Örn Steinunnar Ólafsson veitingamaður sá um að framreiða kræsingarnar.
Ólafur Örn Steinunnar Ólafsson veitingamaður sá um að framreiða kræsingarnar. Ljósmynd/Thelma Arngrímsdóttir
Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, Hrönn Greipsdóttir og Berglind Rán Ólafsdóttir.
Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, Hrönn Greipsdóttir og Berglind Rán Ólafsdóttir. Ljósmynd/Thelma Arngrímsdóttir
George Peppou, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Vow.
George Peppou, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Vow. Ljósmynd/Thelma Arngrímsdóttir
Dýrðin borin fram, Forged parfait.
Dýrðin borin fram, Forged parfait. Ljósmynd/Thelma Arngrímsdóttir
Katrín Jakobsdóttir, Berglind Rán, George Peppou og Sigtryggur Hilmarsson.
Katrín Jakobsdóttir, Berglind Rán, George Peppou og Sigtryggur Hilmarsson. Ljósmynd/Thelma Arngrímsdóttir
Auður Árnadóttir í góðum félagsskap.
Auður Árnadóttir í góðum félagsskap. Ljósmynd/Thelma Arngrímsdóttir
Guðmundur Steingrímsson lét sig ekki vanta.
Guðmundur Steingrímsson lét sig ekki vanta. Ljósmynd/Thelma Arngrímsdóttir
Ljósmynd/Thelma Arngrímsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert