Þessum poka gæti orðið erfitt að loka aftur

Auðjón Guðmundsson, framkvæmdastjóri markaðs- og sölusviðs Nóa Síríus segir að …
Auðjón Guðmundsson, framkvæmdastjóri markaðs- og sölusviðs Nóa Síríus segir að fyrir tíu árum hafi allt ætlað um koll að keyra hjá þjóðinni þegar Nói Síríus setti í fyrsta skipti á markað Nóa Kropp með hvítu súkkulaði. Samsett mynd

Þegar kemur að sælgæti er fátt skemmtilegra en að fá aftur á markað vöru sem sló í gegn en var einungis fáanleg í takmarkaðan tíma. Nema auðvitað þegar aðaleinkenni þeirrar vöru er sameinað annarri vöru sem einnig hefur slegið í gegn og úr verður ný og einstök bragðupplifun, byggð á þrautreyndum grunni.

Allt ætlaði um koll að keyra

Fyrir tíu árum ætlaði allt um koll að keyra hjá þjóðinni þegar Nói Síríus setti í fyrsta skipti á markað Nóa Kropp með hvítu súkkulaði. Fyrir tveimur árum leit svo Bíó Kroppið dagsins ljós, stórar kúlur með smjör og salt bragði, sem undanfarið hafa verið fáanlegar sem Idol Kropp. Nú hafa sælkerarnir hjá Nóa Síríus sameinað þessa tvo bragðheima en Bíó Kropp með hvítu súkkulaði er nú á leið í verslanir.

„Okkur langaði að gera eitthvað skemmtilegt í tilefni þess að tíu ár eru síðan Nóa Kropp með hvítu súkkulaði leit fyrst dagsins ljós,“ segir Auðjón Guðmundsson, framkvæmdastjóri markaðs- og sölusviðs Nóa Síríus. „Og þar sem Idol Kroppið með smjör og salt bragði hefur slegið rækilega í gegn ákváðum við að prófa að nota þær kúlur í stað þeirra hefðbundnu. Þær eru stærri og og það verður að segjast eins og er að útkoman er eiginlega umfram væntingar,“ bætir Auðjón við og segir smjör og salt bragðið fari alveg einstaklega vel með hvíta súkkulaðinu. „Svo vel reyndar að ég get ímyndað mér að það verði mörgum erfitt að loka pokanum aftur,“ segir Auðjón brosandi.

Hvít Bíó Kropp bætist við fríðan flokk

Hvíta Bíó Kroppið, sem fæst í takmörkuðu magni, bætist í fríðan flokk Nóa Kropps sem prýðir hillur verslana. Klassíska Nóa Kroppið sem glatt hefur landsmenn á góðum stundum í áratugi stendur alltaf fyrir sínu, enda oft kallað hættulega ávanabindandi, og fyrir þau sem vilja örlítið hærra hlutfall af ljúffengu rjómasúkkulaðinu er Nóa Kropp súkkulaðistykkið hin fullkomna lausn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert