„Þetta var sturlað“

Cole Palmer fagnar sigurmarki sínu í gærkvöldi ásamt Enzo Fernández.
Cole Palmer fagnar sigurmarki sínu í gærkvöldi ásamt Enzo Fernández. AFP/Glyn Kirk

Cole Palmer var að vonum ánægður eftir að hann skoraði þrennu og tryggði Chelsea dramatískan sigur á Manchester United, 4:3, í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöldi.

„Þetta var sturlað. Ég er svo hamingjusamur. Það er ekkert betra en að vinna með þessum hætti,“ sagði Palmer í samtali við TNT Sports eftir leikinn.

Tvö markanna komu úr vítaspyrnum þar sem hann skoraði í bæði skiptin af miklu öryggi.

„Fólk segir að ég skori bara úr vítaspyrnum en ég er ekki að fara að klúðra þeim er það? Sjö, níu, þrettán!“ bætti Palmer við í léttum tón.

Alls hefur hann skorað 16 mörk í 26 leikjum fyrir Chelsea í úrvalsdeildinni á tímabilinu ásamt því að leggja upp átta mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert