Hamar fagnaði sínum fyrsta sigri

Hafdís E. Helgadóttir, var á ferðinni með ÍS í 22 …
Hafdís E. Helgadóttir, var á ferðinni með ÍS í 22 ár en hún leikur nú með Val. Þorvaldur Örn Kristmundsson

Valur og Hamar úr Hveragerði áttust við í Iceland Express deild kvenna í körfuknattleik í gær en liðin voru án stiga fyrir leikinn. Valur skoraði aðeins fjögur stig í fjórða og síðasta leikhluta og Hamar fagnaði þriggja stiga sigri, 45:42. 

Signý Hermannsdóttir og Hafdís Helgadóttir skoruðu 10 stig hvor fyrir Val en  La K. Barkus skoraði meira en helming stiga Hamars, 27 alls. Hafdís lék með ÍS samfellt í 22 ár áður en hún skipti yfir í Val þegar ÍS var lagt niður s.l. sumar. Hafdís á leikjametið í efstu deild kvenna en hún hefur leikið yfir 370 leiki. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert