Formaður SHA sækir um forstjórastarf Varnarmálastofu

Stefán Pálsson
Stefán Pálsson

Stefán Pálsson, formaður Samtaka hernaðarandstæðinga (SHA) hefur ákveðið að sækja um starf forstjóra nýrrar Varnarmálastofu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stefáni.

„Um allnokkurt skeið hef ég verið þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að gegna formennsku í Samtökum hernaðarandstæðinga. SHA hafa alla tíð verið virkur þátttakandi í umræðu um friðar- og afvopnunarmál og haft sterkar skoðanir á því hvernig varnar- og öryggismálum íslensku þjóðarinnar verður best fyrir komið. Í því sambandi hafa SHA ætíð verið reiðubúin að ráða stjórnvöldum heilt. Til að mynda gáfu þau ítarlega umsögn um nýsamþykkt frumvarp til laga um stofnun Varnarmálaskrifstofu Íslands.

Í umsögn sinni lögðu SHA til að frumvarpinu yrði vísað frá, enda fæli það í sér óásættanlega hernaðarhyggju og ofuráherslu á tengingu við Nató. Því miður varð Alþingi ekki við ábendingum samtakanna og er frumvarpið orðið að lögum. Í dag, föstudaginn 2. maí, rennur svo út umsóknarfrestur um starf forstjóra nýrrar Varnarmálastofnunar.

Að vandlega íhuguðu máli ákvað ég að senda inn umsókn og búa mig undir að taka að mér þetta valdamikla embætti.

Á vef utanríkisráðuneytisins kemur fram að hæfniskröfur séu þessar: „Forstjóri Varnarmálastofnunar skal hafa lokið háskólaprófi og hafa þekkingu á verksviði stofnunarinnar. Við val á forstjóra verður litið til reynslu af mannaforráðum, stjórnun og rekstri, leiðtogahæfileika, hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku a.m.k., hæfni til upplýsingamiðlunar, samskiptahæfni, frumkvæðis og metnaðar.”

Í gagnrýni SHA á varnarmálafrumvarpið kom fram sá ótti að Varnarmálastofnun kynni að blása út og verða sífellt dýrari í rekstri fyrir skattgreiðendur. Sem forstjóri stofnunarinnar stefni ég að því að halda umsvifum hennar í algjöru lágmarki og minnka allan rekstrarkostnað eins og mögulegt er. Þannig sé ég enga ástæðu til að halda úti kostnaðarsömum heræfingum, eins og lögin gera þó ráð fyrir. Jafnframt virðist mér liggja beint við að fella niður alla þá þætti ratsjárstöðvakerfisins sem ekki gagnast beinlínis fyrir borgaralegt flug. Markmið mitt verður að skila ríkissjóði aftur stærstum hluta þess framlags sem áætlað er til varnarmála á fjárlögum.

Megináherslur mínar í starfi munu verða fólgnar í að tryggja öryggi þjóðarinnar með áherslu á friðar- og afvopnunarmál að leiðarljósi. Í því skyni mun ég t.a.m. leggja til við stjórnvöld að Íslendingar hætti að haga stefnu sinni á alþjóðavettvangi útfrá hagsmunum Nató. Raunar er það sannfæring mín að öryggi landsins verði best tryggt með tafarlausri úrsögn úr hernaðar- og kjarnorkubandalaginu Nató.

Samkvæmt varnarmálalögum er gert ráð fyrir því að forstöðumaður Varnarmálastofnunar standist öryggisvottun Nató. Hver sá sem sækir um starf hjá stofnuninni fellst samkvæmt sömu lögum á að yfirvöld löggæslumála hnýsist í einkamál hans, fortíð og skoðanir, til að leggja mat á hvort viðkomandi teljist háskaleg/ur. Það er mér sem friðarsinna sérstakt tilhlökkunarefni að fá í eitt skipti fyrir öll skorið úr um það hvort hernaðarbandalagið telji mig háskalegan einstakling.

Í mínum huga eru engir hagsmunaárekstrar fólgnir í því að gegna samtímis stöðu forstjóra Varnarmálastofnunar og formennsku í Samtökum hernaðarandstæðinga. Kunni utanríkisráðuneytið að vera á annarri skoðun er ég til umræðu um að láta af þeim félagsstörfum," að því er segir í tilkynningu frá Stefáni Pálssyni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert