Efna til kröfufundar á Austurvelli

Frá mótmælum á Austurvelli síðasta vetur.
Frá mótmælum á Austurvelli síðasta vetur. mbl.is

Hagsmunasamtök heimilanna og Nýtt Ísland hafa boðað til kröfufundar á Austurvelli á morgun kl 15:00. Fundarstjóri verður Lúðvík Lúðvíksson frá Nýja Íslandi, en ræðumenn þeir Einar Már Guðmundsson rithöfundur og Bjarki Steingrímsson varaformaður VR.

Í fréttatilkynningu frá skipuleggjendum kemur fram að helstu kröfur þeirra snúi að því að höfuðstól lána verði leiðréttur, verðtrygging afnumin, að veð takmarkist við veðandlag og skuldir fyrnist á 5 árum. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert