Boðað til kröfufundar á Austurvelli

Frá útifundi Hagsmunasamtaka heimilanna á Austurvelli. Mynd úr safni.
Frá útifundi Hagsmunasamtaka heimilanna á Austurvelli. Mynd úr safni. mbl.is/hag

Hagsmunasamtök heimilanna og Nýtt Ísland boða til kröfufundar á Austurvelli kl. 15 í dag. Ræðumenn eru þeir Einar Már Guðmundsson rithöfundur og Bjarki Steingrímsson, varaformaður VR.

Fram kemur í tilkynningu að helstu kröfur séu eftirfarandi:

  1. Leiðrétting höfuðstóls lána.
  2. Afnám verðtryggingar.
  3. Að veð takmarkist við veðandlag.
  4. Að skuldir fyrnist á 5 árum. 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert