Gleymdi að tilkynna bílslys

Það óvenjulega atvik varð í dag að Neyðarlínan gleymdi að láta lögregluna á Selfossi vita að bíll hefði farið út af veginum í Þjórsárdal. Neyðarlínan kallaði út sjúkrabifreið í forgangsakstur en það var fyrir fyrirspurn sjúkraflutningamanna sem mistökin uppgötvuðust. Ökumaðurinn fannst látinn.

Lögreglan á Selfossi staðfestir þetta en tekur sérstaklega fram að atvikið feli ekki í sér lögbrot né heldur leiki vafi á því hvort bjarga hefði mátt manninum ef lögreglan hefði orðið fyrri til á vettvang. Málið sé í rannsókn en leiða megi líkur að því að maðurinn, sem er um áttrætt, hafi látist undir stýri við hægan akstur, en hann var látinn þegar að var komið. Hann fór út af veginum við Gaukshöfða í Þjórsárdal.

Lögreglan lítur málið þó alvarlegum augum enda séu mistök af þessum toga „óþolandi“.

Að sögn lögreglunnar er um 45 mínútna akstur í forgangi að slysstaðnum frá Selfossi og um klukkustundar akstur á venjulegum hraða.

Mistökin uppgötvuðust sem fyrr segir þegar sjúkraflutningsmenn voru komnir á vettvang og þá farið að lengja eftir lögreglu.

Ekki er hægt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert