Mikill eldur í húsi við Hverfisgötu 61

Mikill eldur kom upp í húsi við Hverfisgötu 61 á horni Frakkastígs kl. þrjú í nótt í nótt. Allt tiltækt slökkvilið var kallað á staðinn en vel gekk að slökkva eldinn. Enginn var í húsinu, sem er bakhús, en tvö nærliggjandi hús voru rýmd á meðan. Miklar skemmdir urðu. Eldsupptök eru ókunn en málið er til rannsóknar hjá lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert