Tilraunaverkefnið Hreyfing fyrir alla stofnað

Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, hefur stofnað til tilraunaverkefnisins Hreyfing fyrir alla sem er samstarfsverkefni heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins, Lýðheilsustöðvar og Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.

Verkefnið er unnið í samvinnu við Reykjavíkurborg, Akureyrarbæ, Hafnarfjarðarbæ, Mosfellsbæ, Ungmennafélagið Breiðablik í samstarfi við Kópavogsbæ, Héraðssamband Vestfirðinga og Héraðssamband Bolungarvíkur í samstarfi við Ísafjarðarbæ, Bolungarvíkurkaupstað og Súðavíkurhrepp. Einnig heilsugæslu og íþróttafélög í viðkomandi sveitarfélögum. Þá munu stéttarfélögin VR og Efling veita verkefninu stuðning, sem og fleiri aðilar.

Tilgangur verkefnisins Hreyfing fyrir alla er, eins og nafnið gefur til kynna, að fjölga tilboðum á skipulagðri hreyfingu, einkum fyrir fullorðna og eldra fólk, í skipulögðu samstarfi við sveitarfélög, heilsugæslu og íþróttafélög. Verkefninu er ætlað að höfða til ólíkra hópa og með mismunandi þarfir sem stunda ekki reglulega hreyfingu, að því er segir í tilkynningu.

„Það er aldrei of seint að breyta um lífsstíl en hreyfingarleysi er einn af helstu orsakavöldum lífstílstengdra sjúkdóma eins og ofþyngdar, aukins kólesteróls og hækkaðs blóðþrýstings, ásamt reykingum, áfengis- og vímuefnaneyslu og óhollu mataræði. Allt eru þetta þættir sem við getum tekið á sjálf og bætt þannig heilsu okkar,“ sagði Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, þegar samstarfsverkefnið var undirritað í dag í höfuðstöðvum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands í Laugardal.

Vonir standa til að verkefnið geti náð til allt að 2/3 hluta landsmanna og hafa rúmlega 13 milljónir króna þegar verið tryggðar til að hleypa því af stokkunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert