Slökkvilið Akureyrar kallað út að Hafnarstræti

Slökkvilið Akureyrar var í morgun kallað að Hafnarstræti 86a. Tilkynning barst liðinu í gegnum Neyðarlínu og hafði tilkynnandi séð reyk leggja undan þaki hússins. Allt vakthafandi lið fór á staðinn á tveimur dælubílum ásamt körfubifreið.  Við komu á vettvang kom í ljós að um gufu var að ræða en heitt vatn flæddi um aðra hæð hússins og niður á þá fyrstu.

Húsið er þrílyft timburhús sem hefur verið mannlaust um tíma. Lokað var fyrir inntak hússins og gufu loftað út, húsið er mikið skemmt af völdum vatns og gufu, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði Akureyrar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert