[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Íþróttablogg

skak.is

Skák.is | 21.3.2010
Íslandsmót barnaskólasveita fer fram í dag í Smáralindinni 
Skák.is Íslandsmót barnaskólasveita 2010 fer fram í Vetrargarðinum, Smáralind , sunnudaginn 21.mars. Mótshaldið er í höndum Skákakakademíu Reykjavíkur í nánu samstarfi við Skáksamband Íslands. Tefldar verða 8 umferðir eftir Monrad-kerfi - umhugsunartími 10 mín.… Meira

Staða - Úrslit

Ísland
Önnur lönd
Danir unnu ótrúlegan sigur á Portúgölum í gær með tveimur mörkum á lokamínútunni.

Danir unnu ótrúlegan sigur á Portúgölum í gær með tveimur mörkum á lokamínútunni. Reuters

Íþróttir | mbl.is | 11.9.2008 | 16:55

Danir ósáttir við „þagnarbindindi“

Eftir dramatískan sigur Danmerkur á Portúgal í gær í undankeppni HM í knattspyrnu sniðgengu leikmenn og þjálfari danska liðsins fréttamenn allra miðla utan sjónvarpsstöðvarinnar TV3. Ástæðan ku vera hörð gagnrýni á liðið eftir síðustu leiki þar á undan.

Að leik loknum kom aðeins fjölmiðlafulltrúi landsliðsins, Lars Berendt, að máli við fjölmiðla með eftirfarandi skilaboð:

„Við tileinkum sigurinn þeim sem trúðu á okkur. Fólk hefur kallað eftir betri frammistöðu og við svöruðum því kalli á vellinum í dag. Þessu fögnum við með stuðningsmönnum okkar á vellinum, fólkinu heima og okkur sjálfum.“

Þetta hefur valdið talsverðri gagnrýni á danska liðið og meðal annars hafa samtök verið stofnuð á Facebook sem bera nafnið „Landsliðið - hópur af vælandi kellingum“ og hafa 789 skráð sig þegar þetta er skrifað.

„Að hundsa fjölmiðla fyrir að hafa gagnrýnt liðið er svo barnalegt og fáránlegt að við sem „neytendur“ komumst ekki hjá því að íhuga að hundsa svona stelpuhóp. Og ef að Morten Olsen tók þátt í þessu má reka hann á stundinni (hann var hvort sem er orðinn frekar nálægt því),“ segir í yfirlýsingu á síðu hópsins.

Þá hafa stjórnmálamenn og knattspyrnuspekingar fordæmt þessa ákvörðun.

„Maður hundsar ekki fjölmiðlana. Að sama skapi finnst mér að fjölmiðlar megi ekki láta eins og þetta sé það versta sem gerst hefur í sögu danska knattspyrnusambandsins. Gerum nú bara gott úr þessu og setjum þetta á bakvið okkur, við náðum jú frábærum sigri,“ sagði Flemming Östergaard, framkvæmdastjóri FCK.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Íþróttir / Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Föstudaginn 19. mars
Fimmtudaginn 18. mars
Miðvikudaginn 17. mars
Þriðjudaginn 16. mars
Mánudaginn 15. mars
Sunnudaginn 14. mars
Laugardaginn 13. mars
Föstudaginn 12. mars
Fimmtudaginn 11. mars
Miðvikudaginn 10. mars
Þriðjudaginn 9. mars