Við Sólheima í Reykjavík hafa hjón nokkur búið sér ákaflega fallegt heimili. Íbúðin er mikið endurnýjuð og eru flotuð gólf og flotaðar borðplötur í forgrunni. Blokkin var byggð 1960 og er íbúðin sjálf 104 fm að stærð.
Íbúðin er mjög hlýleg en veggir eru ýmist málaðir í mjúkum gráum litum eða veggfóðraðir. Í eldhúsinu er hvít sprautulökkuð innrétting og eru borðplöturnar steyptar með flot-áferð. Það kemur ákaflega vel út. Í eldhúsinu er stórt borðstofuborð sem gerir það að verkum að hægt er að bjóða mörgum í mat án þess að það væsi um neinn.
HÉR er hægt að skoða íbúðina nánar.