Fengu ljót skilaboð eftir að góssið seldist upp

Á Fotia.is má finna Morphe augnskuggana.
Á Fotia.is má finna Morphe augnskuggana.

Á Snapshat hjá vefversluninni Fotia kemur fram að augnskuggapallettan 350 frá Morphe sé að gera allt vitlaust, bókstaflega. Palletan, sem hefur verið uppseld, fór í sölu inni á Fotia-síðunni í dag en seldist upp á einni mínútu.

Um 2000 manns reyndu að kaupa pallettuna sem kom í takmörkuðu upplagi. Morphe setur skýrar reglur og þess vegna mátti hver og einn bara kaupa eina augnskuggapallettu klukkan 12:00 í dag. Ekki voru allir sáttir sem ekki náðu augnskuggunum og starfsfólk Fotiu hefur fengið ljót skilaboð í gegnum Facebook í kjölfarið. Þetta kom fram á Snapchat hjá Fotiu.

Starfsmaður Fotia sagði að vonandi fær vefverslunin fleiri pallettur á næstu vikum og þá verða viðskiptavinir látnir vita með góðum fyrirvara áður en góssið fer í sölu.

„Mig langar bara að biðja ykkur um að vera góðar við okkur,“ sagði starfsmaður Fotia á Snapshat.

Þetta er augnskuggapallettan sem allir eru að tapa sér yfir.
Þetta er augnskuggapallettan sem allir eru að tapa sér yfir.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál