Ástfangin af samstarfsmanni – hvað er til ráða?

Izumi/Unsplash

Valdimar Þór Svavarsson, ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu, svarar spurningum lesenda Smartlands. Hér fær hann spurningu frá konu sem er heit fyrir yfirmanni sínum og veit ekki hvað er til ráða. 

Hæhó! 

Ég byrjaði í nýrri vinnu fyrir 6 mánuðum síðan. Á þessu hálfa ári hef ég orðið mjög náin einum manni. Hann er rúmum tíu árum eldri en ég og er í millistjórnendastöðu í fyrirtækinu. Hann er samt ekki beinn yfirmaður minn. Hrifningin er gagnkvæm og hann er búinn að segja mér að hann langi til að taka samband okkar, sem er bara vinnusamband eins og er, á næsta stig. Ég er frekar óviss með þetta allt, því þó ég sé hrifin af honum, þá vil ég líka hugsa um framtíð mína í vinnunni. Ég er búin að mennta mig í þessu fagi og langar til að ná langt. Ég vil ekki að sambandið hafi áhrif á vinnuna mína. Í fyrirtækinu sem við vinnum hjá er ekkert sem bannar það að starfsfólk dragi sig saman, ég er búin að spyrjast fyrir um það. Hvað ætti ég að gera?

Kveðja, PK

Valdimar Þór Svavarsson fyrirlesari og ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu.
Valdimar Þór Svavarsson fyrirlesari og ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu.

Góðan daginn og takk fyrir spurninguna.

Það er með þetta eins og svo margt annað að í flestum tilvikum er beinlínis óráðlegt að gefa öðrum ráð. Á endanum stendur maður og fellur með eigin ákvörðunum og aðrir geta ekki tekið þær fyrir mann. Við stöndum öll frammi fyrir því að þurfa að taka ákvarðanir og velja á milli möguleika á hverjum degi. Það sem veldur mestum erfiðleikum er tíminn sem líður á meðan við höfum ekki tekið ákvörðun, óvissan er erfiðust. Þegar búið er að taka ákvörðun mun svo tíminn einfaldlega leiða í ljós hvaða lærdóm má draga af ákvörðuninni sem var tekin. Það er varla neitt til sem heitir „röng ákvörðun“, ekki nema þær sem beinlínis skaða aðra. Ákvörðun er bara ákvörðun og svo lærir maður eitthvað af henni eða ekki.

Það getur enginn spáð fyrir um hvaða afleiðingar verða af ákvörðuninni sem þú ert að velta fyrir þér. Hvort samband gangi eða ekki leiðir tíminn í ljós, hvort þetta hefur áhrif á vinnuna þína eða ekki mun tíminn líka leiða í ljós. Stundum er sagt að þegar maður er að leita að svari við ákvörðunum þá eigi maður að segja já, nei eða bíða. Þú þarft kannski að velta því fyrir þér hvað innsæið er að segja þér í þessu tilviki og taka ákvörðunina út frá því, fyrir hverju finnur þú frið. Það hefur reynst best á endanum.

Kær kveðja, 

Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafi. 

Liggur þér eitthvað á hjarta? Þú getur sent Valdimar spurningu HÉR. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál