Börnin klædd eins og foreldrarnir

Fyrirsætan Chrissy Teigen ásamt dóttur sinni Lunu.
Fyrirsætan Chrissy Teigen ásamt dóttur sinni Lunu. ljósmynd/Instagram

Stjörnurnar eru duglegar að klæða sig í stíl við börnin sín. Þó svo að þetta geti verið krúttlegt þegar börnin eru lítil getur það verið hálfógnvekjandi þegar börnin eru orðin eldri og farin að líkjast foreldrum sínum eins og í tilfelli Demi Moore og Rumer Willis. 

Harper's Bazaar tók saman nokkur tilfelli þar sem stjörnurnar hafa klæðst eins fötum og börnin þeirra. Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian er ansi dugleg að fara í smá fataleik með dóttur sinni North West. Vilhjálmur Bretaprins og Georg litli hafa stundum klæðst svipuðum fötum enda klæðast prinsar ekki hverju sem er. 

Vilhjálmur Bretaprins og Georg Bretaprins

Feðgarnir Vilhjálmur og Georg í konunglegum peysum.
Feðgarnir Vilhjálmur og Georg í konunglegum peysum. mbl.is/AFP

David Beckham og Brooklyn Beckham

Beckham-feðgar í felulitunum.
Beckham-feðgar í felulitunum. ljósmynd/Instagram

Demi Moore og Rumer Willis

Mæðgur eða tvíburar?
Mæðgur eða tvíburar? ljósmynd/Instagram

Gisele Bündchen og Vivian Brady

Fyrirsætan Gisele Bündchen og dóttir hennar klæddust báðar treyjum merktum …
Fyrirsætan Gisele Bündchen og dóttir hennar klæddust báðar treyjum merktum Tom Brady, eiginmanni Bündchen. ljósmynd/Instagram

Beyoncé og Blue Ivy Carter

Í sundbolum í stíl.
Í sundbolum í stíl. ljósmynd/Instagram

Kim Kardashian og North West

Kardashian West-mæðgurnar alveg eins.
Kardashian West-mæðgurnar alveg eins. ljósmynd/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál