HK-strákar með silfur á Gothia Cup

Leikmenn 3. flokks HK í Gautaborg.
Leikmenn 3. flokks HK í Gautaborg.

Þriðji flokkur karla hjá HK náði einum af bestu úrslitum sem íslenskt unglingalið hefur náð á alþjóðlegu móti erlendis þegar Kópavogsliðið fékk silfurverðlaun á hinu stóra móti Gothia Cup í Gautaborg á dögunum.

Þeir voru hársbreidd frá gullverðlaunum en úrslitaleikurinn gegn Onsala frá Svíþjóð endaði 1:1 þar sem Svíarnir sigruðu í bráðabana í vítaspyrnukeppni.

Nánar er sagt frá árangri liðsins á kfrettir.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert