Aron lánaður til Noregs

Aron Rúnarsson Heiðdal í búningi Keflavíkur í baráttu við Kjartan …
Aron Rúnarsson Heiðdal í búningi Keflavíkur í baráttu við Kjartan Henry Finnbogason Eva Björk Ægisdóttir

Aron Rúnarsson Heiðdal, tvítugur varnarmaður úr Stjörnunni, hefur gengið til liðs við norska B-deildarliðið Nest Sotra og mun leika með því út keppnistímabilið á lánssamningi.

Þetta kemur fram á fotbolta.net í kvöld, þar sem segir að Aron hafi óskað eftir því að fara frá Stjörnunni nú í félagaskiptaglugganum. Félög í Pepsi-deildinni og 1. deild eru sögð hafa verið áhugasöm um þjónustu hans en á endanum ákvað hann að fara til Nest Sotra sem er staðsett rétt utan við Bergen.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert