Mjög sterkt hjá okkur að klára þetta

Sóley Guðmundsdóttir.
Sóley Guðmundsdóttir. mbl.is/Árni Sæberg

„Þetta var algjör baráttusigur og ég er bara mjög sátt með þessi stig,“ sagði Sóley Guðmundsdóttir, fyrirliði ÍBV, en ÍBV vann FH 1:0 á Hásteinsvelli í dag í Pepsi-deild kvenna.

„Við fengum mörg tækifæri til að gera út um leikinn en það gekk ekki en þá var bara mjög sterkt hjá okkur að ná að halda þessu og ná að klára þetta.“

Eyjakonur fóru mikið í það að tefja leikinn síðasta korterið og voru að halda forystunni. Var þetta fyrirskipun frá Ian Jeffs þjálfara?

„Þetta voru ekki skipanir. Cloe Lacasse er bara svo góð í þessu og við bara nýttum okkur það og náðum að pirra þær.“

Eru þið sáttar með byrjunina á tímabilinu?

„Já, við erum mjög sáttar. Settum okkur ákveðin markmið fyrir byrjunina á tímabilinu og gengu þau flest eftir.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert