Guðmunda tryggði Stjörnunni sigur

Guðmunda Brynja Óladóttir skoraði sigurmarkið.
Guðmunda Brynja Óladóttir skoraði sigurmarkið. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Guðmunda Brynja Óladóttir skoraði sigurmark Stjörnunnar í 1:0-sigri á Fylki á útivelli í síðustu umferð Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu í dag. Markið kom á 43. mínútu. 

Stjarnan tryggði sér 4. sæti deildarinnar með sigrinum, þar sem liðið er með betri markatölu en ÍBV sem hafnar í 5. sæti, en bæði lið enda með 33 stig. Nokkuð er síðan ljóst varð að Fylkir fellur úr deildinni. Fylkiskonur hafna í næstneðsta sæti með aðeins níu stig og tvo sigra í allt sumar. 

Tímabil Stjörnunnar er ekki lokið þar leikir gegn Rossiyanka frá Rússlandi í 32-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu taka við í byrjun næsta mánaðar. Fyrri leikurinn fer fram í Garðabænum næstkomandi fimmtudag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert