Miðar á leik Íslands og Frakklands í 8-liða úrslitum á Evrópumótinu fara í sölu klukkan 12:00 á morgun (28. júní) á vef UEFA.
Leikurinn fer fram á þjóðarleikvangi Frakka, Stade de France, á sunnudagskvöld og hefst klukkan 21 að staðartíma, 19 að íslenskum tíma.