Ísland markahæst innan teigs

Ísland hefur fagnað sex mörkum á EM og öll hafa …
Ísland hefur fagnað sex mörkum á EM og öll hafa þau verið skoruð innan vítateigs. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Ekkert lið hefur skorað jafnmörg mörk innan vítateigs í Evrópukeppninni í knattspyrnu í Frakklandi og íslenska liðið.

Öll sex mörk Íslands hafa verið skoruð úr vítateignum. Mark Birkis Bjarnasonar gegn Portúgal, mark Gylfa Þórs Sigurðssonar gegn Ungverjalandi, mörk Jóns Daða Böðvarssonar og Arnórs Ingva Traustasonar gegn Austurríki og mörk Ragnars Sigurðssonar og Kolbeins Sigþórssonar gegn Englandi.

Aðeins Belgía (8) og Wales (7) hafa skorað fleiri mörk en íslenska liðið í mótinu. Nokkur lið hafa gert sex mörk í keppninni eins og íslenska liðið.

mbl.is

LEIKIR Í DAG - 26. APRÍL

Útsláttarkeppnin

LEIKIR Í DAG - 26. APRÍL

Útsláttarkeppnin