Hreingerningar í gangi hjá QPR

Mark Hughes.
Mark Hughes. Reuters

Mark Hughes knattspyrnustjóri QPR hefur hafið sumarhreingerningarnar hjá félaginu en það rétt bjargaði sér frá falli og leikur því áfram í ensku úvalsdeildinni á næstu leiktíð.

Átta leikmenn yfirgefa QPR í næsta mánuði þegar samningar þeirra renna út en það eru þeir Peter Ramage, Danny Gabbidon, Danny Shittu, Fitz Hall, Gary Borrowdale, Lee Cokk, Rowan Wine og Patrick Agyemang.

Heiðar Helguson verður áfram í herbúðum Lundúnaliðsins en Heiðar, sem varð markahæsti leikmaður liðsins á tímabilinu þrátt fyrir vera frá meira og minna síðustu fimm mánuðina, á eitt ár eftir af samningi sínum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert