Áhrifaríkt myndskeið frá Liverpool

Þess var minnst í gær að 25 ár eru liðin …
Þess var minnst í gær að 25 ár eru liðin frá harmleiknum á Hillsborough leikvanginum í Sheffield þegar 96 stuðningsmenn Liverpool létu lífið. AFP

Leikmenn í aðalliðum karla og kvenna hjá Liverpool ásamt yngri flokkum, minnast í meðfylgjandi myndskeiði hinna 96 sem létust í Hillsborough slysinu árið 1989, þar sem 25 ár eru liðin frá harmleiknum í Sheffield. Leikmenn Liverpool telja upp nöfn þeirra er létust í harmleiknum á Hillsborough í myndskeiðinu.

Sérstaklega áhrifaríkt er að sjá þegar Steven Gerrard fyrirliði fer með nafn frænda síns Jon-Paul Gilhooley, sem var 10 ára þegar hann lést. Þá sést Katrín Ómarsdóttir landsliðskona Íslands og leikmaður kvennaliðs Liverpool leggja sitt af mörkum þegar 1:55 mín. er liðin af myndskeiðinu.

Sjón er sögu ríkari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert