Bojan úr leik næstu mánuðina?

Bojan Krkic fagnar marki sínu gegn Rochdale í gærkvöld.
Bojan Krkic fagnar marki sínu gegn Rochdale í gærkvöld. AFP

Bojan Krkic framherji Stoke er hugsanlega úr leik næstu 6-8 mánuðina vegna meiðsla sem hann varð fyrir í bikarleiknum gegn Rochdale í gærkvöld.

Óttast er að Bojan hafi slitið krossaband í hné og sé það niðurstaðan spilar hann ekki næstu mánuðina. Það yrði mikið áfall fyrir Stoke enda hefur framherjinn knái verið einn besti leikmaður liðsins á tímabilinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert