Rafael á leið til Lyon

Rafael da Silva fagnar marki með Manchester United.
Rafael da Silva fagnar marki með Manchester United. AFP

Brasilíski bakvörðurinn Rafael da Silva sem leikið hefur með Manchester United frá árinu 2008 er að öllum líkindum á leið í franska boltann.

Enskir fjölmiðlar greina frá því að Rafael muni gangast undir læknisskoðun hjá franska liðinu Lyon á morgun og að henni lokinni mun hann skrifa undir samning við félagið.

Rafael, sem er 25 ára gamall, hefur aðeins komið við sögu í 29 leikjum með United í ensku úrvalsdeildinni á síðustu tveimur tímabilum og hann virðist ekki vera inni í myndinni hjá stjóranum Louis van Gaal.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert