Fögnuður Leicester-manna - myndskeið

Stuðningsmaður Leicester City í miðborg Leicester í kvöld.
Stuðningsmaður Leicester City í miðborg Leicester í kvöld. AFP

Leicester City varð fyrir stundu enskur meistari í knattspyrnu í fyrsta skipti þegar Chelsea og Tottenham gerðu jafntefli, 2:2, á Stamford Bridge.

Leikmenn Leicester fylgdust með viðureign Lundúnaliðanna heima hjá Jamie Vardy, framherja liðsins. Austurríski varnarmaðurinn Christian Fuchs setti þetta myndskeið af fagnaðarlátum leikmanna Leicester á Twitter rétt í þessu:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert