Mourinho hefur náð frábærum árangri

Jamie Carragher hefur trú á því að Mourinho væri rétti …
Jamie Carragher hefur trú á því að Mourinho væri rétti maðurinn fyrir Manchester United. AFP

Jamie Carragher, fyrrverandi leikmaður Liverpool og núverandi sparkspekingur, telur að væntanleg koma José Mourinho til Manchester United muni koma liðinu aftur í hóp þeirra allra bestu.

„José (Mourinho) er stórt nafn og hefur reynslu af því að vinna titla. Hann er gríðarlega sigursæll og United vill sigurvegara,“ sagði Carragher en Mourinho hefur unnið landstitil í fjórum löndum, Portúgal, Englandi, Ítalíu og á Spáni.

Carragher veit að Mourinho er ekki þekktur fyrir að vera sókndjarfasti knattspyrnustjórinn. „Hann stýrði samt Real Madrid, sem var með frábæra sóknarmenn eins og Ronaldo innanborðs, og vann deildina þar, þannig að það ætti ekki að vera vandamál.“

„Ég held að United muni ná góðum árangri undir stjórn Mourinho. Hann hefur náð frábærum árangri alls staðar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert