Rashford framlengir við Manchester United

Rashford verður hjá Manchester United næstu árin.
Rashford verður hjá Manchester United næstu árin. AFP

Sóknarmaðurinn ungi Marcus Rashford hefur skrifað undir nýjan samning við enska knattspyrnufélagið Manchester United.

Nýr og bættur samningur er til fjögurra ára en möguleiki er á því að samningurinn verði framlengdur um eitt ár.

Rashford, sem er 18 ára gamall, hefur skotist upp á stjörnuhimininn á tímabilinu. Hann skoraði mark í sínum fyrsta leik með Manchester United í Evrópudeildinni og ensku úrvalsdeildinni. Einnig skoraði hann mark síðastliðinn föstudag í sínum fyrsta leik með enska A-landsliðinu.

Manchester United tilkynnti á sama tíma að varnarmaðurinn Cameron Borthwick-Jackson hefði líka skrifað undir nýjan samning til fjögurra ára.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert