Deulofeu lánaður til Milan

Gerard Deulofeu í leik með Everton.
Gerard Deulofeu í leik með Everton. AFP

Kantmaðurinn Gerard Deulofeu spilar ekki fleiri leiki með Everton í ensku úrvalsdeildinni á þessu keppnistímabili. 

Deulofeu hefur spilað 13 leiki með Everton á tímabilinu en hefur nú verið lánaður til ítalska stórliðsins AC Milan. 

Deulofeu er 22 ára gamall Spánverji sem var keyptur til Everton árið 2015 frá Barcelona. Ronald Koeman, knattspyrnustjóri Everton, hafði lýst því yfir að til greina kæmi að lána Spánverjann til þess að hann fengi fleiri mínútur inni á vellinum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert