Kunnugleg nöfn á meiðslalistanum

José Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, á blaðamannafundi í Anderlecht í …
José Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, á blaðamannafundi í Anderlecht í gær. AFP

Wayne Rooney, Juan Mata, Phil Jones og Chris Smalling eru áfram á meiðslalistanum hjá Manchester United og verða fjarri góðu gamni þegar liðið mætir Anderlecht í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar í knattspyrnu karla á Constant Vanden Stock í kvöld.

Kólumbíski hægri bakvörðurinn Antonio Valencia hefur hins vegar hrist af sér meiðslin sem hafa verið að plaga hann undanfarið og hann ferðaðist með leikmannahópnum til Anderlecht.

„Leikmannahópurinn er þunnur þessa stundina og allir þeir sem eru ekki alvarlega meiddir verða með í þessum leik. Við munum reyna að tjasla þeim saman sem eru með smávægileg meiðsli. Rooney, Mata, Jones og Smalling verða hins vegar ekki með, það er klárt,“ sagði José Mourinho á blaðamannafundi í gær.    

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert